• Increase font size
  • Default font size
  • Decrease font size
Ágrip af sögu Eyjólfsstaða

Stutt lýsing á staðnum og sögu hans

Það er vel gróið land á Eyjólfsstöðum og myndarlegur garður hefur gróið fyrir framan skólahúsið.
Eyjólfsstaðir eru í eigu Íslensku Krists-kirkjunnar, en hún er lúthersk fríkirkja, stofnuð í Reykjavík 4. október 1997. Söfnuðurinn er arftaki samtakanna Ungt fólk með hlutverk sem ýmsir kannast við og starfaði að margvíslegu safnaðar- og boðunarstarfi innan Íslensku þjóðkirkjunnar á árunum 1976 til 1997. Ungt fólk með hlutverk keypti Eyjólfsstaði árið 1978 til að standa hér að kristilegri menningarstarfsemi, -reka biblíuskóla, halda ráð-stefnur og mót og fleira í þeim dúr. Einnig ráku samtökin kúabú um nokkurra ára skeið, eða þar til sú starfsemi bar sig ekki lengur vegna þeirrar stefnu þáverandi yfirvalda að draga úr landbúnaði. Þá var fljótlega farið í búháttabreytingu og árið 1990 tekin upp skipulögð skógrækt í tengslum við Héraðsskóga sem er ríkisstyrkt nytjaskógaverkefni á Fljótsdalshéraði.

Auk ofangreindrar starfsemi er rekin almenn gistiþjónusta á staðnum yfir sumarmánuðina. Hefur sú starfsemi farið vaxandi á liðnum árum. Eyjólfsstaðir eru lögbýli og þátttakendur í Ferðaþjónustu bænda.


Húsin á staðnum
Þrjú hús standa á Eyjólfsstöðum, að útihúsunum undanskildum. Fyrst er að telja gamla íbúðarhúsið sem er á hægri hönd þegar ekið er upp heimreiðina. Það er byggt árið 1952. Í þessu húsi eru tvær íbúðir, önnur á jarðhæð, hin í risi. Annað íbúðarhús stendur á vinstri hönd þegar komið er á staðinn, það er byggt um 1980. Bæði þessi hús eru notuð fyrir starfsfólk staðarins og að hluta til fyrir gistiþjónustuna.
 
Húsin á Eyjólfsstöðum frá suð-vestri

Íbúðarhúsið sem stendur fyrir framan skólann.
Stærsta húsið á staðnum er oftast kallað Biblíuskólinn vegna þess að þar eru haldin biblíunámskeið. Húsið er heimavistarhús með 10 tveggja til þriggja manna herbergjum á jarðhæð. Á jarðhæð er einnig matsalur, eldhús, snyrtingar, skrifstofa og fl. Í risi eru tvær rúmgóðar starfsmanna-íbúðir auk bókasafnsherbergis og samkomusalar sem rúmar um 80 manns í sæti. Smíði Biblíuskólans hófst árið 1979 en henni lauk ekki að fullu fyrr en um 1995. Fyrsta formlega biblíunámskeiðið var haldið í skólanum árið 1989. Síðan þá hafa verið haldin þar mörg námskeið, ýmist löng eða stutt. Húsið er mjög hentugt fyrir mót og ráðstefnur og hefur það mikið verið notað til slíkra hluta. Það hefur einnig nýst mjög vel í ferðaþjónustunni og þar gistir fjöldi gesta, innlendra og erlendra á hverju sumri.

Að lokum má telja útihúsin –fjós, hlöðu, verkstæði og geymslur. Á níunda áratugnum, þegar yfirvöld þrengdu að landbúnaðinum, eins og fyrr sagði, urðum við að hætta hefðbundnum búskap. Það gerðist árið 1987. Smæð fjóssins flýtti einnig fyrir þessari þróun. Nú standa engar kýr lengur í fjósi á Eyjólfsstöðum og hey er ekki lengur geymt í hlöðunni. Þessara húsa bíður annað hlutverk í framtíðinni.


Brot af búskaparsögu
Enginn veit með vissu hvenær fyrst var reistur bær á Eyjólfsstöðum, sennilega hefur það verið tiltölulega snemma, hugsanlega upp úr 900. 
 
Eyjólfsstaðir eru lögbýli, eins og fyrr sagði, og hafa verið í bændaeign frá upphafi. Heimaland Eyjólfsstaða er nú um 370 hektarar en því til viðbótar er afréttur sem nær yfir fjallið Aurinn og yfir á Fagradal, en um hann liggur þjóðleiðin niður á Reyðarfjörð. Jörðin var mun víðáttumeiri fyrr á öldum en út frá henni hafa byggst hjáleigur og/eða bæir sem nú eru annað hvort sjálfstæðar bújarðir eða farnar í eyði. Ein þessara jarða var Einarsstaðir sem fóru í eyði um miðja 18. öld. Þar eignaðist Alþýðusamband Austurlands landsspildu 1970 og síðan þá hefur þar risið hverfi snoturra orlofshúsa sem njóta mikilla vinsælda.

Eyjólfsstaðir hafa talist mikil og góð bújörð

Eyjólfsstaðir hafa í gegnum aldirnar verið taldir góð bújörð. Landið er tiltölulega stórt og gaf möguleika á drjúgum búskap. Ekki spillti birkiskógurinn í hlíðum Aursins, en hann ber nafn bæjarins og kallast Eyjólfsstaðaskógur. Skógurinn hefur drýgt vetrarbeit, og þar hefur fengist gnægð efniviðar til kolagerðar og upphitunar.

Eyjólfsstaðir eru kenndir við Velli sem eru allstórt flatlendi milli Grímsár og Lagarfljóts. Þar er m.a. hin forna kirkjujörð Vallanes. Eyjólfsstaðir eiga hluta (um 50 hektara) þessa flatlendis og kallast það svæði Eyjólfsstaðanes. Lönd Eyjólfsstaða og kirkjujarðarinnar Vallaness liggja saman á Eyjólfsstaðanesi. Landamerki jarðarinnar að norðan er Kaldá, en hún kemur ofan úr fjallinu og rennur í Grímsá. Norðan (utan) við Kaldá eru Kaldármóar, sem eitt sinn tilheyrðu Eyjólfsstöðum. Það land eignaðist hreppsfélag sveitarinnar fyrir nokkrum áratugum og ætlaði að reisa þar félagsheimili sveitarinnar. Af því varð ekki, en nú er þar risin gróðrarstöð sem ber nafnið Sólskógar. Félagsheimilið sem ber nafnið Iðavellir var hins vegar reist vestan Grímsár -eða norðan árinnar eins og heimamenn kalla það. Næsti bær sunnan við Eyjólfsstaði er Úlfsstaðir.


Eyjólfsstaðakirkja á miðöldum
Eins og þegar hefur komið fram eru Eyjólfsstaðir kristileg starfsmiðstöð og því er ekki úr vegi að nefna hér að öldum saman stóð kirkja á jörðinni. Þann 1. september árið 1314 vígði þáverandi Skálholtsbiskup, Árni Helgason, kirkju að Eyjólfsstöðum. Var hún svokölluð hálfkirkja (messað annan hvern sunnudag og á stórhátíðum) og tileinkuð Þorláki helga Þórhallssyni, Skálholtsbiskupi.

Horft upp til Eyjólfsstaðaskógar yfir tún sem stendur sunnan megin við skólann.
Á þessum tíma voru bænhús víða á bæjum á Héraði eins og annars staðar á landinu. Grímsá var oft illfær á vetrum og því hentugt fyrir fólk á Austur-Völlum að geta sótt helgar tíðir sín megin árinnar í stað þess að þurfa að fara í Vallanes, en þar var sóknarkirkja sveitarinnar. Ekki er vitað hvar kirkjan stóð á Eyjólfsstöðum, né heldur hve lengi hennar naut við. Máldagi hennar hefur varðveist, en hann fannst í Árnasafni í Kaupmannahöfn, skráður á skinn. Texti máldagans er prentaður í Íslensku fornbréfasafni.

 

Herbergi & verð

Room_SglEins manns
kr. 9.000-


Room_TwinTveggja manna
kr. 13.900- 


Room_TrplÞriggja manna
kr. 19.000- 


Room_QuadFjögurra manna
kr. 23.900-


Uppbúin rúm án baðherbergis.
Morgunverður innifalinn


Svefnpokagisting kr. 4.900- pr. mann.


Hvar erum við

location-iconEyjólfsstaðir eru á Fljótsdalshéraði, aðeins 7 mínútna akstur frá Egilsstöðum.
• sjá kort

Friður í skóginum

skogur-iconÍ Eyjólfsstaða- skógi eru gönguleiðir til að njóta friðar og útiveru.
• skoða nánar

Gisting

rooms-iconÁ Eyjólfsstöðum er boðið upp á uppbúin rúm og svefnpokagistingu.
• skoða nánar

Kirkjustarf

church-iconÁ Eyjólfsstöðum er staðið fyrir fjölmörgum kristilegum viðburðum.
• skoða nánar

Kirkjan ÍKK

ikk-iconÍslenska Kristskirkjan er með aðsetur í Fossaleyni 14 í Reykjavík.
• Íslenska Kristskirkjan