• Increase font size
  • Default font size
  • Decrease font size
Viðburðir á Eyjólfsstöðum

Samkomur

kirkjanÁ sunnudögum eru haldnar samkomur í kirkjusal skólahússins hér á Eyjólfsstöðum kl.11:00.
Hefðbundin stund samanstendur af barnastund og barnastarfi fyrir yngri þátttakendur og lofgjörð, predikun eða kennslu og bæn. Frá ársbyrjun 2012 hafa stundirnar verið með heldur heimilislegra sniði þar sem fátt hefur verið um börn og tónlistarfólks hefur ekki notið við. Eftir stundina er gjarnan settur léttur hádegisverður á borð, eða aðrar veitingar svo sérstök ástæða er til að dvelja aðeins lengur og eiga gott samfélag í lok stundar. Allir eru hjartanlega velkomnir á stundir og njóta samfélags á eftir.

Samkomur á sunnudögum kl. 11:00 í kirkjusal skólahússins

Frá ársbyrjun 2012 hefur ekki verið hægt að hafa samkomur alla sunnudaga. Vinsamlega hringið eða sendið okkur póst til að fá upplýsingar um næstu samkomu.


Fjölskylduvika

Aðra heilu vikuna í júní á hverju ári, höldum við fjölskylduviku hérna á Eyjólfsstöðum. Þetta hefur verið fastur viðburður í nærri tvo áratugi, þar sem við höldum viku langt mót fyrir alla fjölskylduna.

Hefbundin dagskrá er að á hverjum morgni eru haldnir Biblíulestrar fyrir fullorðna sem og fyrir börnin sem hæfir hverjum aldri, blandað af leik og mikilli útiveru. Yfir daginn eru skipulagðar frjálsar stundir, ýmist fyrir alla fjölskylduna eða ákveðna meðlimi hennar eftir áhuga hvers og eins. Á kvöldin eru svo kvöldvökur þar sem leikir og gaman eru í forgrunni og síðar haldnar samkomur þar sem allir, stórir og smáir eru velkomnir til að hlýða á lofgjörð og predikun úr Guðs orði.

Fjölskylduvikurnar eru skipulagðar tímanlega og auglýstar á heimasíðu kirkjunnar og víðar snemma vors. Taktu tímann frá og stefndu á að koma á Fjölskylduviku á Eyjólfsstöðum næsta sumar!


Visbo - unglingavika

Visbo 2010Árið 2003 var hugtakið VISBO samanstendur af orðunum: Vinna, Skemmtun og Boðun. Hugmyndin er að bjóða unglingum upp á skemmtilega daga á Eyjólfsstöðum, þar sem þessum hlutum yrði blandað saman og fælu fyrst og fremst í sér að eiga skemmtilegan tíma saman með uppbyggingu í orði Guðs, lofgjörð og nánu samfélagi, þar sem hvatningin væri til staðar að stíga út og boða fagnaðarerindið í nágrenni staðarins og til annarra ungmenna á svæðinu.
» skoða nánar

visbo 2010Undanfarin ár hefur Visbo verið haldið um og í kringum verslunarmannahelgina, eða síðar í ágústmánuði, tímanlega fyrir upphaf skólanna. Dagskrá og tímasetning hvers móts er ávallt vel auglýst á vef kirkjunnar og vef unglingastarfsins á www.kristskirkjan.is/unik


Mót um verslunarmannahelgi

Mót um verslunarmannahelgi við varðeldinnVerslunarmannahelgar eru yfirleitt fráteknar á Eyjólfsstöðum fyrir kristileg mót. Hér hefur þá verið haldin hátíð í þrjá daga, með góðum uppbyggilegum stundum í orði Guðs kvölds og morgna. Dagskrá hvers dags fyllt af skemmtilegum uppátækjum eftir veðri og þátttöku, t.d. lofgjörð við varðeld, grillað í skóginum, leikir og jafnvel farið í leðjuslag! Nóg að gera og alltaf ánægjulegar stundir í nærveru Guðs og góðu samfélagi barna hans.

Mótin eru vel auglýst í kirkjunni, á vef hennar www.kristskirkjan.is og á Lindinni og ávallt eru allir velkomnir á þessi mót meðan húsrúm leyfir og pláss fyrir tjöld og vagna er til staðar.


Biblíunámskeið, ráðstefnur, bænadagar o.fl.

Auk ofangreindra fastra liða er ýmislegt sem við gerum og höfum gert til uppbyggingar kristinnar kirkju. Við erum opin fyrir að leggja öllum góðum hugmyndum lið, sem til okkar koma um viðburði sem uppfylla tilgang og köllun staðarins.

paskamót 2005Sem dæmi um viðburði sem haldnir hafa verið, má nefna að hingað hafa komið gestir á vegum Youth With a Mission undanfarin misseri til að boða, kenna og læra. Hér höfum við haft helgar og vikulöng Biblíunámskeið, síðast um boðskap Efesusbréfsins og kennslu um hvað Biblían segir um peninga. Bænahelgi fyrir Austurlandi, ráðstefna um kristilega fjölmiðlun, kyrrðardaga og mót yfir páska þar sem píslarganga Krists var gerð góð skil, svo fátt eitt sé nefnt.

 

Herbergi & verð

Room_SglEins manns
kr. 9.000-


Room_TwinTveggja manna
kr. 13.900- 


Room_TrplÞriggja manna
kr. 19.000- 


Room_QuadFjögurra manna
kr. 23.900-


Uppbúin rúm án baðherbergis.
Morgunverður innifalinn


Svefnpokagisting kr. 4.900- pr. mann.


Hvar erum við

location-iconEyjólfsstaðir eru á Fljótsdalshéraði, aðeins 7 mínútna akstur frá Egilsstöðum.
• sjá kort

Friður í skóginum

skogur-iconÍ Eyjólfsstaða- skógi eru gönguleiðir til að njóta friðar og útiveru.
• skoða nánar

Gisting

rooms-iconÁ Eyjólfsstöðum er boðið upp á uppbúin rúm og svefnpokagistingu.
• skoða nánar

Kirkjustarf

church-iconÁ Eyjólfsstöðum er staðið fyrir fjölmörgum kristilegum viðburðum.
• skoða nánar

Kirkjan ÍKK

ikk-iconÍslenska Kristskirkjan er með aðsetur í Fossaleyni 14 í Reykjavík.
• Íslenska Kristskirkjan