| Íslenska Kristskirkjan Eyjólfsstöðum |
|
Eyjólfsstaðir er starfsmiðstöð Íslensku Kristskirkjunnar, lúthersk fríkirkja sem einnig er með starfsemi í Reykjavík. Á Eyjólfsstöðum er kristilegt starf allt árið um kring með samkomuhaldi, Biblíukennslu og ýmsum viðburðum eins og mótum og ráðstefnum. Hugsjón staðarins er að standa vörð um og efla kristna kirkju í landinu. Hér hefur kristið fólk starfað og beðið fyrir landi og þjóð í yfir30 ár, fyrst undir merkjum Ungs fólks með hlutverk og í seinni tíð á vegum Íslensku Kristskirkjunnar. Samkomur eru kl. 11:00 alla sunnudaga í kirkjusal skólahússinsSmellið hér til að sjá aðra viðburði sem eru á dagskrá Eyjólfsstaða
Á vegum Ungs fólks með hlutverk voru haldin hér fimm mánaða löng, alþjóðleg Biblíu- og boðunarnámskeið, unnin í tengslum og samvinnu við kristniboðshreyfinguna Youth With A Mission. Frá 1997 hefur staðurinn verið í eigu Íslensku Kristskirkjunnar en UFMH var forveri kirkjunnar og Friðrik Schram upphafsmaður og einn stofnenda bæði kirkjunnar og hreyfingarinnar sem í tvo áratugi starfaði með kirkjum víðsvegar um landið. Kynntu þér starfsemi Íslensku Kristskirkjunnar betur á vef hennar www.kristskirkjan.is |
Eyjólfsstaðir eru á Fljótsdalshéraði, aðeins 7 mínútna akstur frá Egilsstöðum.
• sjá kort
Í Eyjólfsstaða- skógi eru gönguleiðir til að njóta friðar og útiveru.
• skoða nánar
Á Eyjólfsstöðum er boðið upp á uppbúin rúm og svefnpokagistingu.
• skoða nánar
Á Eyjólfsstöðum er staðið fyrir fjölmörgum kristilegum viðburðum.
• skoða nánar
Íslenska Kristskirkjan er með aðsetur í Fossaleyni 14 í Reykjavík.
• Íslenska Kristskirkjan